Leita í fréttum mbl.is

Jesús líklega vonsvikin

Jesús sýndi það svo sannarlega þegar hann var hér meðal mannanna að hann elskaði fólk eins og það var, og ekki dró hann fólk í dilka eftir stöðu þess í samfélaginu. Jesús sýndi þeim sem stóðu höllum fæti gangvart valdhöfum sérstakan áhuga og vildi bæta stöðu þeirra í samfélagi manna.

Nú skil ég ekki þjóðkirkjuna sem boðar orð Jesú krists.  Ég ætla samt ekki að segja mig úr þjóðkirkjunni því innan hennar starfar fólk sem er ötult baráttufólk fyrir réttindum samkynhneigðra þ.á.m. fyrir rétti til hjónavígslu í Guðshúsum. Ég vil starfa með þessu fólki, þau eiga það skilið að við skoðanasystkin þeirra stöndum nú með þeim.

En ég þarf að spyrja einhvern sem til þekkir, afhverju greiddu bara 22 með tillögunni þegar hún var borin upp af 41 presti og guðfræðingi.


mbl.is Tillaga um hjónavígslu samkynhneigðra felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Kannski hafa einhverjir sem skrifuðu undir tillöguna ekki komist á stefnuna... kannski var það meira í orði eða á borði... 

Ég er a.m.k. afar svekkt út í kirkjunnar menn. 

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 25.4.2007 kl. 21:59

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þetta er algert hneyksli Björk. Allt var svo jákvætt í gær og svo heyrir maður þetta... þvílík vonbrigði. Mér finnst að íslenska þjóðkirkjan mætti sýna hér frumkvæði og gott fordæmi í stað þess að skýla sér á bakvið gatslitnar tuskur afturhaldsseggja og þeirra einstefnuskoðana.

Laufey Ólafsdóttir, 26.4.2007 kl. 00:20

3 identicon

Ekki komust allir sem skrifuðu undir á prestastefnuna, og ekki eru allir í þjóðkirkjunni sem skrifuðu undir. Loks höfðu ekki allir sem skrifuðu undir atkvæðisrétt. Kv. Carlos Ferrer, einn undirritenda.

Carlos (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband