Leita í fréttum mbl.is

Áherslur Velferðarráðs

Nýr meirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknarflokks og F-lista leggur áherslu á það í áætlun fyrir starfsárið 2008, að þjónusta við íbúa Reykjavíkur stuðli að auknum lífsgæðum borgarbúa. Til að það megi takast verður markvisst unnið gegn fátækt og öðrum félagslegum aðstæðum sem torvelda fólki að njóta lífsins með reisn.

 Áhersluatriði Velferðarráðs eru:
  • Húsnæðismál. Átak til að koma til móts við þá sem eru illa settir á húsnæðismarkaði, í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög.Tryggt verði að allir hafi þak yfir höfuðið.
  • Efling þjónustumiðstöðva til að tryggja kraftmikla, þverfaglega þjónustu í hverfum borgarinnar í samvinnu við borgarbúa og stofnanir borgarinnar.
  • Samþætting, uppbygging og aukin þjónusta við aldraða og fatlaða í heimahúsum.
  • Aukin áhersla á barnavernd, forvarnarstarf, stuðning og aðstoð við fátæk börn og börn í áhættuhópum.
  • Aukin lífsgæði fyrir þá sem hafa fengið fjárhagsaðstoð í langan tíma með áherslu á endurhæfingu og starfsþjálfun.
  • Þróun þjónustu við innflytjendur og flóttafólk.
  • Verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg hafi frumkvæði að því að fá verkefni sem koma að nærþjónustu við aldraða og fatlaða frá ríkinu.
 

Áfram verði sérstök áhersla lögð á málefni aldraðra sem m.a. endurspeglast í eftirtöldu:

  • Byggðar verði 200-300 þjónustuíbúðir til ársins 2010 í umsjá stýrihóps í búsetuúrræðum aldraðra á kjörtímabilinu.
  • Samþætt og bætt heimaþjónusta.
  • Fjölgun dagvistar- , hvíldar- og hjúkrunarrýma í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld
  • Aukið samráð haft við eldri borgara varðandi ofangreind atriði.
 
mbl.is Velferðarráð leggur áherslu á aukin lífsgæði borgarbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Flott hjá ykkur félagar fyrir sunnan!

Guðrún Helgadóttir, 25.10.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Mér líst vel á þetta

Katrín Ósk Adamsdóttir, 25.10.2007 kl. 19:47

3 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Verður tekið á því að fólki sé meinað um fjárhagsaðstoð vegna þess að það eigi íbúð og bíldruslu?

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 26.10.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: Guðrún Birna le Sage de Fontenay

Líst vel á þetta :)

Langar að benda þér á grein sem ég skrifaði á politik.is í síðustu viku um reynslu mína sem fangavörðu í fangageymslunni við Hverfisgötu. Það þarf að gæta þess að ríki og sveitafélag brjóti ekki á fólki sem hefur orðið undir í samfélagi okkar og auki enn á vanda þess. Þetta er kannski ekki stór hópur en þetta eru einstaklingar sem er ekki á bætandi og mega síst af öllum við ósæmilegri meðferð.

Baráttukveðja,
Guðrún Birna

Guðrún Birna le Sage de Fontenay, 29.10.2007 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband