Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Þögn Morgunblaðsins

Morgunblaðið hneykslaðist á því á fyrstu dögum nýs meirihluta í Reykjavík að ekki lægi málefnasamningur fyrir. Við sögðum þá að málefnin yrðu kynnt samhliða starfs- og fjárhagsáætlun. Meirihluti Velferðarráðs brást fljótt við og forgangsraðaði verkefnum. Nú eru liðnir 5 dagar síðan ég sendi ritstjórn Morgunblaðsins áherslur Velferðarráðs en ritstjórnin sem skrifaði sig hása um málefnaleysið fyrir 2 vikum hefur enn ekki séð ástæðu til að birta áherslur okkar. Af hverju þegja þeir nú?

Áherslur Velferðarráðs

Nýr meirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknarflokks og F-lista leggur áherslu á það í áætlun fyrir starfsárið 2008, að þjónusta við íbúa Reykjavíkur stuðli að auknum lífsgæðum borgarbúa. Til að það megi takast verður markvisst unnið gegn fátækt og öðrum félagslegum aðstæðum sem torvelda fólki að njóta lífsins með reisn.

 Áhersluatriði Velferðarráðs eru:
  • Húsnæðismál. Átak til að koma til móts við þá sem eru illa settir á húsnæðismarkaði, í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög.Tryggt verði að allir hafi þak yfir höfuðið.
  • Efling þjónustumiðstöðva til að tryggja kraftmikla, þverfaglega þjónustu í hverfum borgarinnar í samvinnu við borgarbúa og stofnanir borgarinnar.
  • Samþætting, uppbygging og aukin þjónusta við aldraða og fatlaða í heimahúsum.
  • Aukin áhersla á barnavernd, forvarnarstarf, stuðning og aðstoð við fátæk börn og börn í áhættuhópum.
  • Aukin lífsgæði fyrir þá sem hafa fengið fjárhagsaðstoð í langan tíma með áherslu á endurhæfingu og starfsþjálfun.
  • Þróun þjónustu við innflytjendur og flóttafólk.
  • Verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg hafi frumkvæði að því að fá verkefni sem koma að nærþjónustu við aldraða og fatlaða frá ríkinu.
 

Áfram verði sérstök áhersla lögð á málefni aldraðra sem m.a. endurspeglast í eftirtöldu:

  • Byggðar verði 200-300 þjónustuíbúðir til ársins 2010 í umsjá stýrihóps í búsetuúrræðum aldraðra á kjörtímabilinu.
  • Samþætt og bætt heimaþjónusta.
  • Fjölgun dagvistar- , hvíldar- og hjúkrunarrýma í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld
  • Aukið samráð haft við eldri borgara varðandi ofangreind atriði.
 
mbl.is Velferðarráð leggur áherslu á aukin lífsgæði borgarbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velferð mín og borgarbúa

Síðustu 12 daga hef ég hugsað mikið um velferð borgarbúa og á köflum gleymt minni eigin. Ég hef komið heim á kvöldin úrvinda eftir hvilfilbyl dagsins en samt með bros á vör því verkefni daganna hafa verið óvenju krefjandi og skemmtileg. Ég og nýr meirihluti velferðarráðs erum að endurskoða starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs og leggja nýjar áherslur. Þær mun ég birta eftir fund velferðarráðs á morgun, svo og ályktun gegn áfengisfrumvarpinu og fleira skemmtilegt sem verður tekið fyrir á fyrsta velferðarráðsfundi þessa meirihluta. Þetta eru þó langt í frá einu verkin því við í borgarráði erum með til meðferðar fjárhagsáætlun borgarinnar í heild auk annarra verka. 

Flutningar hafa staðið yfir á sama tíma þar sem meirihluti borgarstjórnar hverju sinni á að vera á skrifstofum á annarri hæð í Tjarnargötu 12 en minnihlutinn er í efra. Ekki veit ég af hverju við þurftum að flytja nú í þessarri miklu vinnutörn, en stundum er best að hlýða og brosa. Ávinningurinn er líka nokkur þegar búið er að flytja þar sem við erum nær ritararnum okkar henni Rögnu, fundarherberginu og biðstofu fólksins sem kemur í tugatali og heimsækir borgarfulltrúanna sem eru við völd hverju sinni.

Átti í dag minn fyrsta fund í húsnæðisnefnd Félagsmálaráðuneytisins. Ég hef miklar væntingar til þess að nefndin skili tillögum sem muni skipta sköpum fyrir þá ótal mörgu sem eiga enga úrkosta völ á húsnæðismarkaði dagsins í dag. Ekki veitir af.


For a Minor Reflection á topp 10

Þeir eru ótrúlegir þessir 18 ára drengir; Guðfinnur minn, Kjartan Hólm, Elvar Guðmundsson og Jóhannes Ólafsson. Ég vissi að þeir hefðu staðið sig mjög vel á Airwaves og gert allt sitt besta. En árangurinn er engu líkur. Árni Matthíasson aðaltónlistarrýnir okkar taldi upp 10 helstu og eða bestu viðburði á Airwaves á RÚV í dag. For a Minor Reflection var á topp 10 listanum, nr. 10. Tónlistin þeirra er engu lík og ég hafði haldið að hún væri ekki svo aðgengileg. En þeir slá einhvern tón sem hljómar vel.

Þá gáfu þeir út geisladisk daganna fyrir Airwaves sem heitir "Reistu þig við, sólin er komin á loft" og fæst í Smekkleysu, 12 tónum og Skífunni. 

 

 


Á bestu börn í heimi

Þessa stundina er Kristín mín (16 ára) að snyrta á mér táneglurnar. Hún gaf mér í afmælisgjöf í byrjun október höfuðnudd, fótsnyrtingu og handsnyrtingu sem hún sjálf framkvæmir. Við höfum ekki haft rúman tíma saman síðan þá, en núna mundar hún naglaþjölina á meðan ég blogga. Ég ætla ekki að byrja að nota lýsingarorð til að lýsa henni, því ég veit ekki hvar á að byrja eða enda slíka upptalningu. Ég er ekki nógu mikil tungumálakona til að tjá tilfinningar til þeirra sem mér þykir vænst um. 

Guðfinnur (18 ára) er væntanlegur heim með síðasta strætó af síðustu Airwaves tónleikunum á þessu ári. Hljómsveitin hans For a Minor Reflection hélt tvenna tónleika á hátíðinni. Þeir voru með á opnunarkvöldinu á Grand Rokk og offvenue í Skífunni í gær laugardag. Þeir hafa fengið mjög góða umfjöllun í Morgunblaðinu og Víðsjá. Ég mætti á Grand Rokk ásamt 200 - 300 öðrum aðdáendum og þeir voru alveg frábærir!!! Ég er svo stolt mamma að ég er stundum að springa, verð að passa mig á að vera ekki of mikil mömmu grúbbía.

Haukur (27 ára) er sjálfstæður ungur maður sem hefur verið ofurupptekin síðustu daga vegna Airwaves hátíðarhalda. Talaði við hann um helgina og hitti hann á tónleikum á miðvikudag. Hann er æðislegur. 

Inga mín (29 ára) ásamt sínum eiginmanni Hectori og Evu Björk(11/2 árs) voru hér í mat í kvöld. Bauð ég upp á skötusel með grænmetisostasósu og lífrænum híðishrísgrjónum. man að ég ætlaði að bjóða upp á uppskriftir hér á síðunni. Geri það við tækifæri. Þessi litla fjölskylda og yndislega barnabarnið eru lífið og tilveran. þannig er það bara.

Gerður (34 ára) býr í London ásamt sínum eiginmanni, honum Marcosi. Þeirra er sárt saknað eftir að þau fóru aftur út eftir góða samveru í allt sumar. En Gerður er svo útséð að hún hefur komist í ókeypis símtöl til Íslands og af því að hún er svo fjölskyldurækin þá hringir hún oft. Fyrir það er ég rosalega þakklát þó mér finnist ekki alltaf gaman að tala í síma.

Það skal tekið fram að síðasttöldu börnin mín þrjú fékk ég ókeypis þegar ég náði í einn með öllu. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að eiga öll þessi börn og að ég hafi líka fengið að njóta þess að vera stjúpmamma. Það hef ég getað af því að mamma þeirra hún Eva hefur gefið mér frelsi til þess. Líf mitt er yndislegt og það er dagsatt að ég á bestu börn í heimi. 


Þetta er öll áhættan

Þeir sem best þekkja til vilja í 90% tilfellum kaupa. Auðvitað! Hin 10% hafa kannski ekki haft aðgang að fjármagni eða fjárfestum því við megum ekki gelyma því að það er líka láglaunafólk hjá OR.
mbl.is Níu af hverjum tíu starfsmönnum Orkuveitunnar kaupa í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarbúar segja álit sitt á morgun

Það verður aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur á morgun kl. 16 þar sem fjallað verður um hugsanlega sölu á hlut borgarbúa í Reykjavík Energy Invest og rætt um vinnubrögðin við sameiningu REI við Geysir Green Energy.

Það er afar mikilvægt að borgarbúar tjái skoðun sína með því að mæta á pallanna í Ráðhúsinu. Meirihlutinn er ekki búin að taka ákvörðun þó svo Hannesaræskan sem sprangar nú um keik á stuttbuxunum sínum, hafi tekið ákvörðun fyrir hönd sjálfstæðismanna í borginni. Enn á eftir að heyra endanlega í öðrum manni minnihlutans í meirihlutanum þ.e. Birni Inga fulltrúa Framsóknarflokksins. Almenningur getur haft raunveruleg áhrif á það hvort REI verði selt til einkaaðila og þar með jarðvarminn undir Reykjanesi. Þá verður tekin sú grundvallarumræða hvort félag í sameign borgarbúa megi græða á þeirri þekkingu sem hún sjálf hefur skapað eða hvort það eins og önnur fjárhagsleg verðmæti eigi einungis að vera í höndum einkaaðila sem virðast hafa fengið einkaleyfi á öllu sem gefur arð.

 Sjáumst á morgun kl. 16.


Er einkaleyfi á því að græða?

Ég trúi ekki að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Borgarstjórn Reykjavíkur ætli að selja auðmönnum landsins allan framtíðarjarðvarma Suðurnesja. Það eiga þeir að fá í kaupbæti yfir hlut OR í REI enda á Geysir Green Energy forkaupsrétt að hlutnum og auðvitað vilja þeir kaupa. Ég sé fyrir mér dollarabrosið þegar þeir skála eftir undirritun samninga um leið og þeir hlægja að vitleysisgangi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Við megum alls ekki selja á næstunni. Í sameiginlegu fyrirtæki okkar borgarbúa hefur skapast ómetanleg þekking sem hægt er að nýta til jákvæðrar útrásar. Mikilvægt er að leyfa þeirri þekkingu að skapa þann auð sem vænst er, áður en við seljum.

Það er í lagi að opinbert fyrirtæki græði þegar það hefur unnið fyrir því. Við megum ekki láta eins og það sé einkaleyfi hjá örfáum aðilum að græða. Það er bara vilji Hannesaræskunnar sem ræður ríkjum í Ráðhúsi Reykjavíkur.


mbl.is Eiga forkaupsrétt á hlut Orkuveitunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það jákvæða: fulltrúi borgarbúa inn - góðvinurinn út

Loksins er búið að taka ákvörðun í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins að það verði kjörinn fulltrúi borgarbúa sem gæti milljarða hagsmuna þeirra í stjórn OR. Það var algert hneyksli að góðvinur borgarstjóra skyldi fá það embætti að gæta hagsmuna borgarbúa í stærsta fyrirtæki þeirra, hagsmuna sem eru upp á tugi milljarða króna. Að kjörnir fulltrúar hafi látið það yfir sig ganga hingað til er með ólíkindum. En þetta er það jákvæða í útspili borgarstjórnarflokksins.

Að selja/einkavæða hluta OR er hins vegar það versta sem gert er í stöðunni. Fjárhagslegir hagsmunir Orkuveitunnar/borgarbúa eru hafðir að engu en ofurríka fólkinu gert mögulegt að kaupa enn meira til að hagnast á þeirri þekkingu og reynslu sem hefur orðið til í opinberu fyrirtæki. Ég trúi því ekki að Björn Ingi munu láta það yfir sig og borgarbúa ganga. Nú hefur Björn Ingi það val að öðlast uppreisn æru eða að fara úr öskunni í eldinn.


mbl.is Stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnihlutinn í meirihlutanum í vanda

Ég trúi því ekki að minnihlutinn í meirihlutanum muni samþykkja að selja hlut OR í REI og leyfa þar með auðmönnum landsins að skipta milli sín enn stærri köku. Þá færu Vilhjálmur og Björn Ingi úr öskunni í eldinn. Almenningur mun aldrei sætta sig við gjörning sem er í raun sá að banna almenningi að græða á nýsköpun og útrás en leyfa hinum ríka að verða enn meira ofurríkari.

Hins vegar er í lagi að selja hlut okkar í OR þegar hann hefur skilað sínu.


mbl.is Fundur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband