Leita í fréttum mbl.is

Allir í strætó - minnkum svifryk

Það er full ástæða til að leggja einkabílnum í dag. Óþarfi að slá fyrri svifryksmet eins og margt bendir til í dag. Ég geri mitt með því að fara út núna í strætó, vagn 6 frá Ráðhúsinu upp í Útvarp Sögu. Verð þar með hádegispistil um þetta helst í borgarpólitíkinni. Tek síðan bara einhvern vagn niður í bæ á eftir, þá síðdegis annan vestur á hjónagarða. Verð að passa seinnipartinn eins og suma daga undanfarið og ferð þá með litla barnabarnið í vagninum í strætó. Það er engin hindrun þar sem nánast allir vagnar eru lággólfsvagnar og maður þarf enga hjálp með barnavagninn eins og í gamla daga. Búin að prófa þetta margoft undanfarið með góðum árangri.

Það er gott að nota strætó og algerlega nauðsynlegt á svona dögum. Vonandi sé ég sem flesta.


mbl.is Búist við mikilli svifryksmengun í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengin í Samfylkinguna

Á ársfundi kvennahreyfingar Samfylkingarinnar í dag gekk ég í Samfylkinguna. Éf hef unnið náið með Samfylkingunni í borgarstjórn í rúmt ár, en ekki gengið í flokkinn þar sem brennt barn forðast eldinn. Á þessu ári samstarfs hefur ekki borið skugga á og sárin hafa gróið enda vinnubrögð innan Samfylkingarinnar einstaklega lýðræðisleg og gefandi. 

Pólitískt hef ég fundið fyrir miklum samhljóm í velferðarmálum sem kom reyndar ekki á óvart. En því meira sem ég hef kynnst kvenfrelsisáherslum Samfylkingarinnar og umhverfisstefnunni Fagra Ísland hef ég enga ástæðu til að standa utangarðs. Mig var farið að langa virkilega til að taka fullan þátt í starfinu og vinna kröfuglega ásamt félögum mínum að því að skipta út ríkisstjórn í vor.


Sólin skín enn skærar

Um leið og ég sá fréttina tók allt í einu eftir því að sólin er komin ótrúlega hátt á himininn og skín skært þessa stundina. Frábærar fréttir og gott veður úti. Ég er farinn út að ganga með Evu Björk, litla barnabarnið mitt sem ég fæ að passa í dag.  
mbl.is Hætt við klámráðstefnu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðstoðarmaður borgarstjóra úthlutar íbúðum

 Það kom fram í fjölmiðlum nýverið í viðtali við aðstoðarmann borgarstjóra að hann taldi mjög lítið hafa verið byggt og keypt af félagslegum íbúðum á tímum R-listans. Einnig tjáði hann sig um úthlutanir félagslegra íbúða og sagði m.a.: “Í sumar var ég persónulega í því að taka inn fólk í félagslega húsnæðiskerfið.” Á þeim rúma áratug sem Reykjavíkurlistinn stýrði málum í Reykjavík fjölgaði félagslegum leiguíbúðum frá því að vera 688 árið 1994 í 1518 árið 2006 fyrir utan þjónustuíbúðir. Á sama tíma var unnið markvisst að því að gera úthlutanir faglegar þar sem sameiginlegt úthlutunarteymi raðar umsækjendum í forgangsröð eftir félagslegum aðstæðum. Vegna ummæla aðstoðarmanns borgarstjóra lagði ég fram fyrirspurn í Borgarráði í morgun og spurði:
  1. Hversu marga hefur aðstoðarmaður borgarstjóra tekið inn í félagslega húsnæðiskerfið? 
  2. Er verið að hverfa frá þeim vinnubrögðum a forgangsraða umsækjendum eftir aðstæðum og úthluta pólitískt í félagslegar leiguíbúðir í eigu borgarinnar?
  

Borgarstjórn staðfestir mismunun

Í gær staðfesti borgarstjórn breytingar á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra þess efnis að samdægursþjónusta sé einungis fyrir þriðjung notenda þjónustunnar. Í þessu felst mismunum þar sem þeir einir njóta ferðaþjónustu fatlaðra sem eru metnir í þörf á þjónustunni á faglegan hátt af sérfræðingur, læknum og félagsráðgjöfum. Notendurnir eiga það sameiginlegt að geta ekki eða illa nýtt sér almenningssamgöngur og fá því rétt til ferðaþjónustu fatlaðra. Það er ekki málefnalegt sjónarmið að skipta fólki upp eftir fötlunarflokki og ég stórefa að það standist jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Ef það ætti að takmarka samdægurs þjónustu hlýtur að þurfa að fara fram mat þannig að þeir einstaklingar sem eru í mestri þörf sitji við sama borð, óháð því hvort fötlunin er líkamleg eða andleg.En það er ekki bara verið að mismuna hópum fatlaðra, nýja þjónustan er of dýr og vinnubrögðin algerlega ólíðandi þar sem ekkert samráð var haft við hagsmunasamtök notenda.

Við afgreiðslu málsins lögðum við fram breytingartillögu (sjá viðhengi) þess efnis að samdægursþjónustan væri fyrir alla sem metnir væru í þörf fyrir sérstaka ferðaþjónustu, en henni var vísað frá af fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Frjálslyndra.

Eftir málflutning sem skilaði litlu nema roða í kinnar bókuðum við borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri – grænna að við hörmuðum “þá niðurstöðu sem fengin er í borgarstjórn með breyttum reglum um ferðaþjónustu fatlaðra. Borgarráð samþykkti í nóvember 2005 að bjóða upp á samdægursþjónustu frá og með 1. janúar 2007. Nú samþykkir borgarstjórn að samdægursþjónusta sé einungis fyrir þriðjung notenda þjónustunnar þó svo allir séu metnir í sömu þörf fyrir þjónustuna, enda forsenda að geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur. Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri – grænna efast stórlega að þessi útfærsla standist jafnræðisreglu stjórnsýslulaga sem kveður á um að óheimilt sé að mismuna aðilum við úrlausn sambærilegra mála.  Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri – grænna telja að sá kostnaður sem notendum er ætlað að greiða fyrir þessa nýju þjónustu sé of mikill og ekki í neinu samræmi við þær tekjur sem þessi hópur fær í gengum almannatryggingar. Þá átelja borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri – grænna vinnubrögð í þessu máli. Ekki var haft samráð við hagsmunasamtök notenda þjónustunnar sem þó hafa lýst yfir vilja til að koma að málinu og ótrúlegur seinagangur hefur einkennt alla vinnslu þessa máls.”  Sendi sem viðhengi breytingartillögu okkar í Samfylkingu og Vinstri – grænum, ásamt greinargerð.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Solla stirða

Bendi á frábæra samantekt á truno.blog.is um hversu Ingibjörg Sólrún er vond - sérstaklega gagnvart konum - að mati Staksteina. Tær snilld að afhjúpa rógsferð Styrmis og samstarfskarla hans á hendur þeirri konu sem þeir eru hræddastir við.

Takk truno!!!!


Dæmd öfgafeministalesbía

Já. Ég fékk athugasemd frá óskráðum notenda vegna pistils mín gegn væntanlegri klámstefnu í Reykjavík. Viðkomandi sagði "ég yrði ánægður ef öfgafeministalesbíur eins og þú myndu láta þá sem vilja skoða klám í friði."

Ég var ekki að ráðast að þessum manni persónulega, þó svo ég deili þeirri skoðun með borgarstjóra, biskupi og flestöllum sem hafa tjáð sig undanfarið að klám sé ofbeldi og niðurlægjandi fyrir þá sem það stunda.  En eitthvað er sárt fyrir þennan mann og hans líka að heyra þá umræðu sem nú hefur blessunarlega vaknað í samfélaginu gegn klámi.

En ég tek því ekki alvarlega að vera kölluð öfgafeminstalesbía. Er ekkert á móti feministum né lesbíum nema síður sé og öfgafólk margt hvert er alveg ágætt. Ég hef áður verið kölluð trukkalessa í netmiðli og í útvarpsþætti og fundist það bara allt í lagi. Fólk má hafa sínar skoðanir á mér, en ég skil bara ekki hvað fólk er að blanda kynhneigð inn í umræðu um ofbeldi.


Enga klámkónga í Farmers Pallace!

Ég vil ekki fá ykkur klámkónganna í heimsókn til Reykjavíkur og gera höfuðborgina okkar að stað fyrir klámframleiðendur og klámiðnaðinn. Klám er kynbundið ofbeldi sem beinist aðallega gegn konum. Ég vil ekki sjá þessi viðskipti. Hótel Saga og ferðamannaiðnaðurinn getur alveg án þessarar heimsóknar verið. Ef við réttum þessum aðilum litla puttann og mótmælum ekki kröfuglega þá er ég hrædd um að þessi kaupstefna verði byrjunin á nýjum tímum þar sem Reykjavík verður gerð að paradís klámmyndaiðnarins.

Klámvæðingin hefur nú þegar haft allt of mikil áhrif. Ég vil ekki sjá meira!

 


mbl.is Klámþing verður haldið hér á landi í næsta mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að að leyna opinberum gögnum?

Þau gögn sem lögð eru fram á fundum velferðarráðs eru opinber gögn. Það ætti því ekki að vera harmur eins né neins að þau skuli rædd opinberlega eins og lesa má úr fréttatilkynningu Velferðarsviðs frá því í dag. Niðurstöður opinberra úttekta eins og Ríkisendurskoðunnar eru gerðar opinberar um leið og þær birtast og eru þær birtar á vef stofnunarinnar. Það er til fyrirmyndar því þannig geta fjölmiðlar orðið að eðlilegu aðhaldi. En það er ekki eðlilegt að leyna niðurstöðum í fleiri mánuði og harma það síðan að þær séu ræddar opinberlega. 

Í frétt á mbl.is segir "Velferðarsvið Reykjavíkurborgar harmar það að úttekt stofnunarinnar á stuðningsbýli á Miklubraut 18 skuli vera komin í hendur fjölmiðla, og þá atburðarrás sem hafi fylgt málinu. Þá þykir henni miður að hún hafi ekki náð að kynna úttektina fyrir velferðarráði fyrr en 14. febrúar s.l., en þetta kemur fram í tilkynningu sem velferðarsviðið sendi frá sér."


mbl.is Harma að úttekt velferðarstofnunar hafi ratað í hendur fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmum niðurstöðum leynt vegna nýrra samninga?

Á fundi velferðarráðs í dag 14. febrúar 2007 var lögð fram úttekt á stuðningsbýlinu Miklubraut 18 sem Samhjálp rekur fyrir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar með þjónustusamningi. Í niðurstöðum koma m.a. fram alvarlegar athugasemdir um aðbúnað, mat og viðveru starfsmanna. Það undarlega í málinu er að úttektin var gerð í júlí og ágúst á sl. ári og skýrslan var tilbúin í september 2006. Nú fyrst fáum við að sjá þetta, nú þegar nýbúið er að gera nýja samninga við rekstraraðilann.

Fullltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og F-lista átöldu í Velferðarráði harðlega vinnubrögð þau sem fram komu við úttektina á Miklubraut 18. Úttektin var gerð í júlí og ágúst 2006 og skýrsla um úttektina í september 2006. Alvarlegar athugasemdir eru í niðurstöðum úttektarinnar. Íbúar eru mjög ósáttir við mat og húsnæðisaðstæður og kvörtuðu undan lítilli viðveru starfsmanna og ónógu eftirliti með heimilinu. Ráðgjafar heimilismanna höfðu ýmsar athugasemdir fram að færa og efuðust um að úrræðið hafi nýst notendum sínum.

Skýrslan var fyrst kynnt Velferðarráði nú í febrúar 2007 sem er algerlega óviðunandi í ljósi þess að á tímabilinu frá því skýrslan var gerð og þar til nú hefur Velferðarráð og Velferðarsvið gert nýja samninga við rekstraraðila Miklubrautar 18, nú um rekstur Gistiskýlisins. Það er ekki að undra að sá grunur fæðist að upplýsingum hafi vísvitandi verið leynt fram yfir nýja samninga við Samhjálp.

Þá óskuðum við fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og F-lista eftir upplýsingum um fjárveitingar til Miklubrautar 18 og að fá að sjá rekstrarreikninga stuðningsbýlisins. Verða svör við því tekin fyrir á næsta fundi ráðsins sem haldinn verður 18. febrúar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband