Leita í fréttum mbl.is

Sagði NEI við NATÓ

Hernaðarbandalagið NATÓ hefur stundað það í mörg ár að bjóða stjórnmálamönnum í “fræðslu”ferðir til höfuðstöðva NATÓ í Brussel. Nú var komið að mér og fékk ég formlegt boð um að koma með til aðal- og herstjórnarstöðvanna í lok næsta mánaðar. Sjaldan hefur mér fundist eins gott að segja nei og nú. Það var ekki þið minnsta hik þó svo ég sé ein af þeim sem á erfitt með að svara með nei-i.

NATÓ er ekki varnarbandalag eins og heiti þeirra gefur tilefni til. NATÓ er hernaðarbandalag eins og sannaðist í árásum þeirra á fyrrum Júgóslavíu. Þá hefur Bandaríkjastjórn notað NATÓ í sínum árásarstríðum bæði í Afganistan og Írak, enda er samtökunum stjórnað út frá bandaríksum hernaðarhagsmunum.

Margir stjórnmálamenn og konur hafa þegið slíkar ferðir og ætla ég ekki að dæma þá einstaklinga. En ég bendi þeim sem vilja kynna sér starfsemi NATÓ á heimasíðu þeirra frekar en að þiggja slíkt boð http://www.nato.int/.

Einnig má kynna sér öndverð sjónarmið á vefsíðu íslensku friðarsamtakanna um frið og afvopnum en hana er að finna á  http://www.fridur.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Flott hjá þér að afþakka. Það skiptir öllu að vera sjálfri sér samkvæm og standa við sína sannfæringu. :)

Svala Jónsdóttir, 11.2.2007 kl. 22:57

2 Smámynd: Sigurður Svan Halldórsson

Björn Ingi Hrafnsson, spilltasti stjórnmálamaður Íslands, hefði örugglega farið. Gott hjá þér

Sigurður Svan Halldórsson, 11.2.2007 kl. 23:09

3 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Glæsilegt Björk. Ég er stolt af þér.

Ingibjörg Stefánsdóttir, 12.2.2007 kl. 08:40

4 identicon

Kæra Björk. telur að ef sf/vg mynda næstu ríkisstjórn að sett verði í stjórnarsáttmaálann annarsvegar ísland úr nato og stopp stopp á allar framkvæmdir næstu 5.árin ?

Óðinn (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 11:34

5 identicon

Það er gott og reyndar sjálftsagt hjá þér að afþakka slíkt boð.  En hvað skeður ef Samfylkingin sest í Stjórnarráðinu?  Samfylkingin er NATO-flokkur. Össur Skarphéðinsson er ötull talsmaður NATO-sinna.  Hvers virði verður stjórn með setu Samfylkingarinnar?  Satt að segja hefur V-G ekki lagt heldur mikið upp úr því að fræða almenning um eðli NATO né að undirbúa úrsögn. Kannske eigum við eftir að sjá fulltrúa SF og VG hittast á barnum í Brussel undir merki stóra "varnarbandalagsins"  hvíta kynstofnsins? Hver veit

Elías Davíðsson (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband