Leita í fréttum mbl.is

Skautað á nagladekkjum

Ég verð að fá að svara samborgurum mínum sem hafa tröllatrú á nagladekkjum í hálku eins og myndaðist í morgun. Ég bý í Efra Breiðholti og lagði af stað frá heimili mínu kl. 8.01 (11 mín of seint) í morgun. Umferðarteppa hafði myndast þar sem bílar gátu vart keyrt niður brekkuna úr Hólahverfi niður að Höfðabakka. Á undan mér voru 2 bílar á nöglum sem bókstaflega skautuðu niður brekkuna og gat ég ekki séð aðra ástæðu en einmitt nagladekkinn. Ég á mínum litla Subaru sem er raunar fjórhjóladrifin keyrði rólega niður án þess að renna / skauta, enda á ónelgdum vetrardekkum.

Meira að segja á dögum sem þessum er erfitt að réttlæta nagladekk a.m.k. ekki í bröttum brekkum. En mest um vert er þó að ekki hafi hlotist alvarleg slys á fólki í þessari miklu hálku. Ég vona að okkar æðri máttur verði yfir okkur öllum í umferðinni það sem eftir lifir dags.


mbl.is Tafir og umferðaróhöpp einkenndu umferðina í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég bý líka í efra-Breiðholti og þeir sem skautuðu og komust ekki af stað voru á ónegldum dekkjum, það sá ég. Fjórhjóladrifið á bílnum þínum skiptir mestum sköpum, láttu mig þekkja það, enda er ég búinn að vera atvinnubílstjóri í nærri 20 ár.

keli (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 15:26

2 identicon

Kæri slembinn, þú hefur kanski ekki lesið að ég skrifa "komust ekki af stað" og þess vegna var ég að tala um fjórhjóladrifið.

keli (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 19:10

3 identicon

Var á ferðinni í hina attina upp í breiðholt og ég hef aldrei lent í öðru eins því yfirleitt er ég 2 mín að aka Vesturbergið en í morgun voru það 30 mín og það voru allir greinileg að skauta hvort sem það var strætó einkabíllinn eða atvinnubílstjórinn.

biggi (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband