Leita í fréttum mbl.is

VG og F gegn húsnæði fyrir geðfatlaða

Í Skipulagsráði í morgun var samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1 (og  F-lista sem er með áheyrnarsetu) að byggja húsnæði fyrir 6 geðfatlaða einstaklinga á Holtavegi. Var þessi ákvörðun tekin þrátt fyrir mikil mótmæli íbúa enda töldu þeir sem að samþykktinni komu að uppbygging húsnæðis fyrir geðfatlaða væri það mikilvægasta sem við stæðum frammi fyrir. Þá stendur nýtt íbúðahús ekki á grænu svæði, heldur á lóð sem ekki hefur verið nýtt á neinn hátt. Nýtt hús mun ekki skerða skólagarðanna eins og sagt hefur verið, né taka af grænt svæði.  

Að sögn Svandísar Svarvarsdóttur réð það ákvörðun hennar og VG að um grænt svæði væri að ræða. Í reiði minni sé ég ekki neitt annað en um hreinan populisma sé að ræða gagnvart þeim hópi fólks sem hefur mótmælt. Besta svarið við  þeim mótmælum hefði verið að allar flokkar hefðu staðið saman að þessari samþykkt. VG og F gátu það ekki - heldur völdu stjórnarandstöðugírinn.  

Reykjavíkurborg var að taka við því verkefni frá ríkinu að tyggja 80 geðfötluðum einstaklingum búsetu. Ekki er ljóst hver afstaða VG og F verður þegar það þarf að byggja upp almennilegt húsnæði fyrir þennan hóp. Kannski þeim finnst bara best að kaupa gamalt svo ekki þurfi að hrófla við neinu. 

Ég er gjörsamlega miður mín yfir þessum vinnubrögðum og það að VG og F sjái ekki til framtíðar fyrir vinsældaþörf nútímans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Björk,  þú ert ótrúleg!

þú klínir fordómum upp á íbúa við Laugardalinn.  Erum við á móti bílum ef við viljum ekki fleiri bílastæði á græn svæði við Laugardalinn.  Erum við á móti skautaíþrótt ef viljum ekki aðra skautahöll í Laugardalinn.  Erum við á móti fiskum  viljum ekki sædýrasafn á grænt svæði í Laugardal,  svona má lengi telja. Ertu virkilega gjörsamlega miður þín, í alvöru talað, þú hlýtur að vera glöð með niðurstöðuna. Til hamingju Björk.

Andrea Þormar 

Andrea (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björk Vilhelmsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir

borgarfulltrúi, félagsráðgjafi og áhugakona um samfélagið.

bjork@reykjavik.is 

sími 862-1302

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband